Markmið fyrirtækisins hefur alltaf verið að vinna sín verkefni vel og ganga úr skugga um að viðskiptavinur sé ánægður með vinnubrögðin.
Bílastjarnan er og hefur alla tíð verið fjölskyldufyrirtæki. Rekstur fyrirtækisins er enn í höndum stofnenda. Við höfum haldið skemmtanir fyrir börn og fjölskyldur á Grafarvogsdegi og haldið jólaskemmtanir og stjörnumessu fyrir fjölskyldur í nærumhverfinu.
36 ár - Bílastjarnan er stofnuð árið 1988 og hefur starfsemi sína í Funahöfða 8 og þar næst Vagnhöfða 3. Árið 1999 reisir fyrirtækið glæsilega aðstöðu í Bæjarflöt 10. 30 September 2024 flytur Bílastjarnan í nýtt og betra húsnæði í Árbænum við Klettháls 1a.
Í komandi framtíð erum við að færa okkur úr olíukyndingu á sprautuklefum yfir í heitt vatn. Flokkum allt rusl og spilliefni og þeim er komið á rétta staði. Við notumst við vatnslakk frá Spies Hecker. Það efni er þannig til gert að þú þarft að nota minna af efninu en frá öðrum framleiðendum.
Við förum eftir leiðbeiningum framleiðanda og notumst við nýjustu tækni í réttingarbúnaði, sem og öllum efnum og tækjum þegar kemur að bílasprautun. Fyrirtækið þjónustar allar tegundir bifreiða og alltaf til í önnur sérverkefni.
Hjá okkur starfa meistarar í faginu, sveinar og lærlingar. Menntun og hæfni í starfi eru okkur mikilvæg.
Opnunartímar:
Mán - Fim 08:00 -17:00
Fös - 08:00 - 15:00